R.M Askja er stoltur eigandi að efri hæðinni í þessu virðulega húsi við Strandgötuna.
Það var um miðjan sjöunda áratuginn sem góðtemplarar á Akureyri kynntust starfi Musterisriddara.
Það var svo á vormánuðum 1970 að sett var á stofn Varðstöð frá RM Heklu í Reykjavík. Strax var mikill kraftur í starfinu og hugur í mönnum. Margir þeirra sem störfuðu í Varðstöðinni urðu síðar styrkustu stoðir Musterisriddarareglunnar á Akureyri. Sumir þessarra manna eru öflugir liðsmenn enn í dag.
Þessir eldhugar stóðu að stofnun Öskju, þann 3. oktober 1981, sem í fyrstu var Vígslumusteri, hækkað upp ári eftir stofnum í Þjónamusteri, og síðar með skipulagsbreytingum reglunnar fyrir fáum árum hækkað uppí Riddaramusteri. Hér er öflugt starf sem byggir á góðum liðsanda og mikilli nýliðun.
Við bræðurnir fögnum 30 ára afmæli reglunnar, fullir vissu um vöxt og viðgang Musterisriddarareglunnar hér á Akureyri.


Hér eru samankomnir allir þeir sem hafa gegnt embætti Meistara í Öskju.